Ég er undir þínum áhrifum í dag..

Og verð áfram enginn vafi er um það...

25.09.2008 11:48:15 / vigga

Búið spil...

Ég hef tekið þá ákvörðun að hætta þessu blessaða bloggi. Þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir til að halda því úti þá virðist sem löngunin sé bara ekki til staðar hjá mér. Vona að þið verðið ekki alveg heartbroken en ég er á Facebook og svo má alltaf hringja í mig og senda mér meil:):)

Takk fyrir að hafa nennt að lesa bullið í mér en nú er þetta bara komið gott.

Knús til allra
Vix

-over and out-

» 2 hafa sagt sína skoðun

09.09.2008 10:11:29 / vigga

Haustið komið

Alveg ótrúlegt!!! Svo mikill haustbragur úti núna, ekki alveg að nenna því að veturinn fari að koma.
Annars gekk hlaupið á laugardag alveg ágætlega, það hefði verið betra að vera búin að stúdera hringinn aðeins betur.. ég var ekki með klukku á mér þannig að ég gerði mér enga grein fyrir hvað ég var búin að hlaupa langt né lengi. Svo kom ég bara fyrir eitt hornið og viti menn. 20metrar í markið og ég var ekkert búin að hraða á mér!! Tíminn var 30.52 minnir mig en mig langaði að fara undir 30mín en það kemur næst:) Er að spá fara kannski í eitt hlaup fyrir veturinn..  Hjartadagshlaupið er 28.sept og alveg spurning um að taka 5km þar líka og fara undir 30mín. Hver kemur með?? Beta? Harpa?Árni?

Badminton komið á fullt eins og ég sagði í síðustu færslu og það var tími í gær. Ég stóð mig nú bara alveg ágætlega þó ég segi sjálf frá. Var amk ekki eins léleg og síðast!!! Enda ekki hægt held ég. Svo er bara spurning hvort ég nenni að keppa eitthvað í vetur eða láti mér nægja að spila bara með öllurunum;) Kemur í ljós...

Helgin síðasta var alveg hin rólegasta hjá mér. Man hreinlega ekki hvenær ég átti svona rólega helgi síðast! Á föstudaginn fór ég bara út að borða og svo í heimsókn til mömmu og pabba. Laugardagurinn fór svo í Brúarhlaupið og tjill yfir daginn en svo fór ég í leikhús með Hörpu um kvöldið. Sáum "Ástin er diskó, lífið er pönk". Alveg ágætis söngleikur bara.
Sunnudagurinn var vinnudagur í Bæjarins en ég nennti ekki alveg að vinna og bauð Jabbó að taka vaktina mína og á meðan þá passaði ég Ásdísi. Góð skipti fyrir okkur báðar held ég bara:) Ásdís er náttúrulega algjör snúlla, alveg ótrúlega skemmtilegur karakter. Svo styttist í að hún fari að koma yfir nótt til Viggu frænku, byrjum á 1 nótt en svo koma kannski helgar líka. Ætli ég verði þá ekki líka að fá einhver af hinum frændsystkinunum í heimsókn þar sem þau eru farin að vilja að gista hjá Viggu frænku! Það fer alveg að koma að því!!

Nóg í bili, see ya

» 1 hafa sagt sína skoðun

04.09.2008 11:17:14 / vigga

Jæja þá..

Þrátt fyrir fögur fyrirheit um að ég yrði duglegri að blogga þá virðist það bara ekki vera að gerast!! En endrum og sinnum nenni ég og þá fáið þið að lesa hvað á daga mína hefur drifið..

Hmm margt og mikið búið að gerast síðan síðasta færsla var birt. Fór náttúrulega til Lanzarote sem var svakalega gaman:):) Gifti mig, kom út úr skápnum og hvað eina hahaha nei ekkert svo stórmerkilegt en sagan er góð þrátt fyrir það!!! Svo komum við heim og næstum beint í Reykjavíkurmaraþonið þar sem 10km voru teknir á tæpum 69 mínútum. Stefni að því á næsta ári að fara undir 60 mín...
Búin að fara á Sálarball og í óvissuferð með vinnunni, sem var alveg svakalega skemmtilegt ;);) Óvissuferðina skipulagði ég með Hildi skvís og ég held að það sé óhætt að segja að við slógum í gegn. Allt heppnaðist rosa vel og allir sáttir eftir ferðina:)

Badmintonið er byrjað og fór ég á fyrstu æfinguna á mánudag og var já bara LÉLEG!! En ég gat allavegana hreyft mig sem er betra en fyrsta æfingin í fyrra hehe enda rúm 30 kg sem ég þarf ekki að burðast með núna. Sperrurnar létu sig ekki vanta og ég er bara búin að bæta í þær síðan með sprettum og fótalyftingum, ásamt því að fara með útibúinu á Esjuna í gær!!! Úff ætli september verði sperrumánuður eins og í fyrra!!! Mætti halda að ég væri ekkert búin að æfa í allt sumar!!!

Svo ætlum við Beta að fara í Brúarhlaupið á Selfossi á laugardaginn :) Svaka duglegar bara. Æj fyrst maður er búin að vera að hlaupa eitthvað er alveg eins gott að nýta það ekki satt?? Ætlum samt bara 5 km í þetta skiptið, legg ekki alveg í 10km strax aftur.

Annars er allt gott að frétta hjá mér en ef þið vitið símann hjá mér ef ykkur langar að heyra í mér.

Knús

» 1 hafa sagt sína skoðun

12.08.2008 09:42:25 / vigga

Lanzarote...

Bara rétt að henda inn smá færslu... en ég er að fara með skvísunum mínum til Lanzarote á eftir jeiii jeii. Er orðin svaka spennt!!! Við erum reddí to go, töskurnar útí bíl og bíðum eftir að klukkan slái 12 og þá verður brunað í Leifstöð;);)

Fékk afmælisgjöf frá familíunni minni í gær, ekkert smá gaman að fá fyrirfram afmælisgjöf :):) Ég á sko eftir að geta nýtt mér hana en ég fékk Evrur og fullt af þeim:):) Pabbi sko alltaf æði þegar ég fer til útlanda að lauma að mér smá aur og ekki verra þegar afmælið er líka.

Jæja, best að klára vinnuna
Knús til allra
Vix

» 5 hafa sagt sína skoðun

31.07.2008 11:50:05 / vigga

Versló

Já ótrúlegt en satt þá er verslunarmannahelgin bara hinum megin við hornið!! Úff manni finnst alltaf sumarið búið þegar sú helgi er búin.. ég á svo reyndar afmæli í ágúst en það er nú yfirleitt rigning á afmælisdaginn minn bara svona til að minna mig á að sumarið sé búið og ég ég sé orðin árinu eldri :s Það var reyndar fínt veður í fyrra :) það var líka skemmtilegasti afmælisdagur sem ég hef upplifað!!! Segi kannski betur frá honum þegar nær dregur afmælinu mínu hehe

Annars er planið um helgina að fara í Húsafell með góðra vina hópi, engin ennþá boðist til að bjóða mér á Þjóðhátíð.. hmm hvað á það eiginlega að þýða fólk???? Mig er búið að langa frekar mikið síðustu vikuna en sei la ví. Ég fer bara út að hlaupa í staðinn hehehe. Já var að skrá mig til þáttöku í Reykjavíkurmaraþoninu, nú er sko ekki aftur snúið!! Svo eru innan við tvær vikur í Lanzarote jibbí jei. Ekki að það sé nú hægt að kvarta yfir veðrinu hér undanfarna daga og já bara í sumar;);)

Svo er mæling hjá mér í fyrramálið :| Vona að hún komi vel út, ég hef reynt að vera dugleg en stund sannleikans rennur víst upp á morgun, wish me luck you guys!!! Ef vel gengur þá kannski hendi ég inn nýjum tölum en ég fór sem sagt síðast í mælingu þann 30.maí.. við tók svo allsherjar sumarfrí hehe tja kannski ekki alveg allsherjar þar sem ég mætti nú eitthvað í ræktina og hljóp eitthvað líka en sumarfrí engu að síður. En nú er það bara harkan sex.. samt ekki alveg um helgina hehe


» 2 hafa sagt sína skoðun

24.07.2008 10:10:20 / vigga

Engin útilega um helgina....

og engin þjóðhátíð í ár...

Vá ég er bara alveg að róast hehehe, búið að vera brjálað að gera í útilegum í sumar. Fór 4 helgar í röð, fyrst á Álfaskeið, svo á Landsmót, eftir það á mínímót rétt hjá Búðardal og svo Flúðir síðasta helgi. Held það sé kominn tími til að vera heima eins og eina helgi núna og ná upp orkunni og svefninum kannski. Ég sef nefnilega ekkert sérstaklega vel í útilegum :s en samt finnst mér alveg hrikalega gaman að fara í útilegu, sofa í tjaldi eða tjaldvagni og vera úti í náttúrunni. I LOVE IT!!!!! Síðasta helgi var sérstaklega skemmtileg og við fengum náttúrulega frábært veður:):) Ekki hægt að biðja um það betra. Það var alveg stappað á Flúðum og við kynntumst fullt af skemmtilegu fólki. Nutum veðurblíðunnar, drukkum bjór og reyndum að kveikja varðeld hahahahaha.

Þannig að planið um helgina er voða lítið nema kannski að skella mér uppá Skaga:) og hafa það huggó þar... reyna að taka heilsuhelgi á þetta þar sem ég er að fara að hlaupa í Reykjavíkurmaraþoninu.. ekki maraþon samt né hálft hehe en bara 10km. Hef ekki hlaupið þá vegalengd í MÖRG ár og ætla að sjá hvort ég geti það ekki bara... hét því eiginlega þegar ég byrjaði í lífstílsbreytingunni fyrir tæpu ári síðan að ég myndi hlaupa þetta þannig að nú er ekki hægt að beila á því.... þarf bara að æfa mig aðeins meira..

Svo erum við skvísurnar að fara til Lanzerote í viku í ágúst veiii veiii þannig að ég ætla að beila á þjóðhátíð... soldið sorrý yfir því en það jafnar sig örugglega. Ætla í staðinn að fara í Húsafell með Sirrý og co.

Jæja nóg í bili
Þangað til næst, hafið það gott og verið góð hvert við annað:)

ps. svo ef einhver vill vera góð(ur) við mig og bjóða mér á Þjóðhátíð þá er ég geim í það hahahahahaha.

Vix

» 1 hafa sagt sína skoðun

15.07.2008 13:51:23 / vigga

"Single"

Tók eitt svona skemmtilegt próf á Facebook til að kanna af hverju í ands... ég er ennþá einhleyp og þetta svar fékk ég:

You seem to be single because of your lack of confidence and shyness. You dont believe that the opposite sex will fall in love with you. We would advise - try to be friends first and then try to date

Hmm ætli það sé eitthvað til í þessu???

» 5 hafa sagt sína skoðun

25.06.2008 12:59:49 / vigga

Lífið er yndislegt...

sjáðu, það er rétt að byrja hér.

Þegar það er svona gott veður í marga daga þá er ekki annað hægt en að vera í góðu eða bara frábæru skapi:):) Ég er búin að hafa það rosa gott og mér finnst eins og allt sé að falla í rétta átt hjá mér núna:):) Veit ekki af hverju mér finnst það en stundum hef ég svona tilfinningu fyrir hlutunum. Og núna finnst mér eins og eitthvað gott sé að fara að gerast í mínu lífi. Það er nú góð tilfinning og ég ætla að halda í hana sem lengst, allavegana þangað til annað kemur í ljós hehe.

Búin að vera hrikalega bissý undanfarið, sjaldan "djammað" eins mikið í einum mánuði með tilheyrandi marblettum og já smá þynnka fylgt í kjölfarið hehe. En bara búið að vera skemmtilegt út í eitt. Vinna á golfmóti, fara í brúðkaup, óvænt djömm að detta inn, Esjan alltaf á sínum stað í hverri viku. Já og ekki má gleyma henni Sollu, hún er alveg að gera sig esskan;);) Einnig er nóg framundan eins og alltaf. Stefnan sett á fyrstu útilegu sumarsins núna um helgina með frábæru fólki og allir velkomnir með:) Var að kaupa mér hlaupabelti svo nú get ég fengið mér vatnssopa á hlaupunum eða þegar ég fer Esjuna án þess að hafa bakpoka eða halda á vatnsflösku. Snilld Svo er ég að byrja í tveggja vikna sumarfríi á föstudaginn þannig að ef einhver vill bjóða mér út á land eða til útlanda þá er ég geim í það hahaha. Voða lítið samt planað í fríinu, nema að fylgja hollustunni eitthvað eftir og já kannski dettur þetta góða inn???
Ætla að reyna að nýta flakkarann minn sem minnst þar sem hann þýðir innivera og takmarka tölvunotkun sem sagt msn og facebook eins og hægt er hehe. Svo kannski að mar skúri, skrúbbi og bóni eitthvað í fríinu.. taka fataskápinn í gegn og fara að losa mig við öll fötin sem eru orðin of stór;) Ekki leiðinlegt það!!!

Veit ekki hvenær ég blogga næst.. en kannski kem ég með update í fríinu.
Hafið það gott elskurnar mínar
VIX

» 6 hafa sagt sína skoðun

12.06.2008 10:02:32 / vigga

James Blunt

Jeeiii loksins er kominn 12.júní, mér finnst eins og það sé ár og öld síðan Jabbó keypti miðana á Blunt en nú er bara komið að þessu:):) Vá hvað ég hlakka til. Er alveg búin að nauðga nýja disknum hans og kann líka eldri diskinn utanað þannig að þetta verður bara enn skemmtilegra:):) Við sitjum á fremsta bekk og fáum hann því beint í æð!! Ekki slæmt að þurfa ekki að hafa einhvern fyrir framan sig til að skyggja á. Læt ykkur vita hversu gaman verður á tónleikunum!

Annars er aldeilis dugnaður í gangi, á þriðjudaginn (Esjudaginn) fór ég að sjálfsögðu uppá Esju með tveimur nýgræðingum en ég var nú samt mjög stolt af þeim að komast upp að Steini. EN svo langaði Hörpu að fara á Esjuna og hún komst ekki á þriðjudag þannig að við skelltum okkur bara í gær með Árna og Sirrý. Sem sagt tveir dagar í röð á fjallið góða. Fyndið samt að maður sér alltaf sama fólkið og þarna er einn gaur sem ég hitti í hvert skipti í gallabuxum og leðurjakka!!! Hann var bæði á þriðjudag og í gær. Einn pottþétt að vinna uppá Skaga og fer upp og niður í bakaleiðinni hehehe það er allavegana mín kenning... get ekki skilið að hægt sé að fara upp í gallabuxum og leddara. Svo er náttúrulega þriðjudagsfólkið sem fer upp og niður, upp og niður og einu sinni enn... og hlaupandi allan tímann!!! Já Esjan er greinilega góð líkamsrækt en komm on. Það er nóg að fara upp og svo aftur niður!!!!

Anyways, best að fara að vinna...

» 3 hafa sagt sína skoðun

10.06.2008 09:06:22 / vigga

Og svo...

er aftur kominn þriðjudagur og Esjan verður tekin með trompi eftir vinnu:) Veitir ekki af að klífa hana á súperhraða til að ná upp brennslunni eftir helgina. Byrjaði reyndar vel á föstudag þar sem við Beta og Sirrý löbbuðum heim til Betu bara svona til að klára umhverfisþingið. EN eftir það var víst ekki aftur snúið og helgin varð sko hin skemmtilegasta og minnti sko sannarlega á þá tíma þegar Klúbburinn var uppá sitt besta!!!
Tókum nettan bjór hjá Betunni og svo var farið í brúnkun enda stór dagur daginn eftir. Eftir nokkra öllara í viðbót þá var bara skellt í sturtu, smink og Bomban skutlaði okkur svo í bæinn. Fórum á English pub, ekki sérstaklega vanar að fara þangað en það var bara stuð. Tókum fullt af myndum og ef ég er í stuði skelli ég kannski þeim prenthæfu hér inn hehehe. Sem sagt, óvart djamm en hörku skemmtilegt eins og þau vilja oft vera. Daginn eftir var smá ryð í okkur en við stöndum við okkar stóru orð og já fórum í Kvennahlaupið!!! Í grenjandi rigningu fórum við þrjár 5km og erum ekkert smá stolltar af okkur:):) Fengum þennan fína fjólubláa dryfit bol og metalíu.. veeiii á enga svoleiðis hahahaha.
Eftir dugnaðinn var brunað heim í sturtu og svo haldið til casa Bomba þar sem við "klúbburinn" borðuðum dýrindis mat. Fengum svo karlmann í heimsókn og það hressti nú í kellunum haha. Hann kom sem sagt til að láta mála sig fyrir grímuball og tókst Bleiku svaka vel upp en hann er búinn að banna mér að birta myndir, sorrý en annars hefði þetta verið eitthvað til að hlægja sig máttlausa!!! Við skelltum okkur svo á Sálarball og mín dansaði af mér fæturna. Held að fólk hafi samt viljað taka af mér fæturna þar sem stigið var á mig í tíma og ótíma, af vinum og ókunnugum og bera fæturnir þess merki. Blá merki!!!! En mikið var nú gaman að dansa við Sálartóna aftur. Orðið allt of langt síðan síðast. Þekkti nú samt ekki marga á ballinu en gat þá bara dansað þeim mun meira:):)
Sunnudagurinn var "þreyttur". Bomban kom með pizzu og við héngum heima hjá mér fjórar saman í góðu yfirlæti. Frábær helgi með frábærum vinkonum. Takk takk fyrir mig:):)

Næsta helgi verður nú ekki eins erfið (vonandi) en þá er beiban að útskrifast þannig að við tökum nú kannski smá skrall þá... engin Hafnarfjörður þá, er það nokkuð???

» 3 hafa sagt sína skoðun

05.06.2008 09:39:46 / vigga

Sex and the city

Jessörí, ætlum í hópferð á hana í kvöld ;) Stefnum á hópeflisferð í vinnunni. Það verður gaman að sjá myndina eftir að hafa horft á alla þættina í gegnum árin. Ætlum fyrst að fara út að borða á Fridays og svo stelpuferð á myndina, held að karlpeningurinn ætli að beila á þessari mynd... er það nú hópefli hehehehe

Esjan var tekin með trompi í gær, en við Beta skelltum okkur bara tvær. Vorum í klukkutíma á leiðinni upp sem var bara fínt sérstaklega þar sem við fórum aðeins út af stígnum og vorum komnar í klifur í miðju fjalli hehe, hitti einmitt fólk sem sá okkur og minntist á þetta hemm hemm. En leiðin niður gekk svaka vel og tók okkur ca hálftíma að hlaupa niður fjallið. Geggjað gaman að hlaupa þetta en kálfarnir mínur eru samt ekki búnir að venjast Esjunni ennþá og eru alltaf við það að krampa!!! Ótrúlegt hvað ég er með bilaði kálfa. Búin að lyfta í allan vetur en nei, krampa í Esjunni í hverri viku!!!
Tilfinningin þegar mar er komin niður og inní bíl er alveg meiriháttar:):) Það færist yfir mann ró og vellíðan og já mar endurnærist bara á því að hafa verið úti í náttúrunni:):) Mæli með þessu fyrir alla!!! Sem sagt næsti þriðjudagur, lagt af stað úr bænum kl. 17.30, eru ekki allir með?????

Það er svakalega skrítið að vera ekki lengur í einkaþjálfuninni. Finn nú alveg að ég er ekkert svaka mótiveruð í lyftingarnar :s Er samt búin að lyfta 2x í þessari viku og hef alveg verið dugleg að hreyfa mig en ég veit ekki hvað ég held þetta út lengi... kannski venst þetta að vera svona ein, já það hlýtur að gerast!!! Svo fer Sirrý vonandi að mæta aftur á morgnanna og þá höfum við stuðninginn af hvor annari. Er það ekki Sirrý??

» 4 hafa sagt sína skoðun

03.06.2008 13:16:45 / vigga

Frábært veður

Já, sumarið ætlar bara að koma strax, en ekki hvað. Var að lesa á mbl að maí mánuður hefði verið sá heitasti í ég veit ekki hvað langan tíma. Vonum að restin af sumrinu verði svona líka.

Það var skemmtilegur vorfagnaður í vinnunni á föstudaginn með söngvakeppni og alles. Þrusustuð alveg og allir í góðum gír. Svo var haldið á lu apotek en ég er samt eiginlega komin með smá leið á þeim stað.... Skellti mér svo í 9 ára afmæli á laugardaginn og borðaði kökur og drakk gos. Nammi nammi gott enda var ég BRJÁLUÐ á föstudaginn og fram yfir helgina með helv... mælinguna mína!!!!! 150grömm, what's that????? Fór reyndar niður um 1% í fituprósentunni og missti 1 kg af fitu en kommon. Girls gotta loose some kilos please!!! Þannig að já ég var brjál á föstudag og er eiginlega ekki ennþá búin að jafna mig en matarræðið skal tekið í gegn núna í júní!!!! Gærdagurinn byrjaði vel, hljóp í vinnuna með bakpoka og hljóp svo aftur heim eftir vinnu. Þvílíkur dugnaður ;);) Svo fór ég nú reyndar í gærusaumó um kvöldið og sukkaði smá... (kannski ekki skrítið þó að árangurinn láti á sér standa humm). Reyndar ákváðum við Elsa að labba upp stigann hjá Oddný bumbu og hún á heima á 7.hæð. Nokkuð gott. En alltaf gaman að hitta gærurnar:)

Í dag er svo Esjudagur en ég verð víst að fresta göngunni minni um einn dag þar sem BSÍ kallar á fund... en morgundagurinn er líka góður fyrir Esjuna. Svo er planið að fara á Sex and the city hópferð á fimmtudaginn, hlakka geggjað til að sjá hana:):)

Á laugardaginn er svo komið að kvennahlaupinu og ég er að spá í að skella mér 5km, sjá hvernig það gengur.. hvað mar er lengi og hvort ég meika það ekki alveg örugglega. Fór í fyrsta sinn í mörg ár út að hlaupa með einhverjum öðrum á föstudaginn.. hef alltaf farið bara ein þar sem ég skammast mín svooo fyrir hvað ég hleyp hægt hehe. En það gekk allavegana að hlaupa með Skarpa þannig að nú er ég klár í kvennahlaupið haha. Svo um kvöldið er svo SÁLARBALL!!!!!!! Veiiiii loksins mín að fara á Sálarball, allt of langt síðan síðast. Fór reyndar á tónleikana þeirra í mars en þá sátum við uppí stúku, vorum ekki á gólfinu að dansa af okkur fæturna en það er planið á laugardaginn. Um að gera að fara í þægilegum skóm... svo mar fái ekki angry toes hahahahha. Læt ykkur vita hvernig það gengur...

Jæja orðið allt of langt....

Bestu kveðjur
Vix

» 3 hafa sagt sína skoðun

27.05.2008 09:26:32 / vigga

Jæja þá....

Best að sjá hvort það komi eitthvað af viti uppúr mér með hækkandi sól og fækkandi fötum :)

Anyway, þá er allt fínt að frétta af mér þessa dagana. Meðgangan alveg að klárast og árangurinn kemur í ljós á föstudaginn. Já þá eru níu mánuðir frá lífstílsbreytingunni minni eða heil meðganga!!! Ég hefði nú getað verið duglegri síðustu tvo þrjá mánuðina en eru það ekki erfiðustu mánuðir meðgöngu, ég bara spyr hehe. En ég er svo sem engan vegin hætt þar sem það eiga eftir að fjúka fleiri kíló fyrir árslok en ég stefni á að vera í "réttri" stærð í október eða í síðasta lagi um jólin. Úff svo langt þangað til!!!!!

Nóg um það... Í dag er þriðjudagur sem þýðir ESJUDAGUR!!! Stefnan er sett á fjallið góða alla þriðjudaga í sumar. Við byrjuðum síðasta þriðjudag og það gekk bara ágætlega. Við fórum upp að Steini og vorum í 1klst og 10 mín að koma okkur þangað upp!!! Og svo í heilar 45 mín á leiðinni niður WHAT!!!! Og við hlupum mest alla leiðina niður, ég svona ekki skilja!!! En vonandi að þetta taki ekki alveg 2 klukkutíma í dag en reikna nú samt frekar með því hehe. Læt ykkur vita hvernig þetta fer. En ef þið kæru vinir hafið áhuga á að koma með á Esjuna þá bara látið mig vita, því fleiri sem koma með því betra.

Svo er nóg framundan hjá mér eins og alltaf en ég skrifa um það síðar.

Knús knús

» 2 hafa sagt sína skoðun

20.05.2008 13:41:27 / vigga

Hvað segið þið?

Nú veit ég ekki hvort einhver kíkir hér einhverntímann inn en ef svo skemmtilega vill til að þið eruð ekki búin að gefast upp á mér þá væri gaman að fá komment :)

Ég er mikið að spá í að hætta þessu bara alveg en samt einhvernveginn tími ég því ekki alveg... Hvað segið þið????
Setti líka inn skoðanakönnun ef þið viljið ekki kommenta

Kv. Vigga

» 7 hafa sagt sína skoðun

19.02.2008 21:26:49 / vigga

Já já

Sko mína, strax komið annað blogg:):)
Þetta verður nú ekki langt að sinni en mig langaði að segja ykkur að ég fór með stelpunum á Laddi-6tugur á laugardag og ÓMÆGOD hvað þetta er fyndið sjó!!! Við hlógum og hlógum og ég sver að ég grét úr hlátri á köflum. Sérstaklega þegar hann kom í gervi leiðsögumannsins. Jiiii hvað það var fyndið!!! Don't fuck so near me!! And then we put it in the who!!! We are in á good skape, ég átti svoooo bágt með mig og við allar held ég bara. Harpa hló samt einna mest enda algjörlega húmor að hennar skapi. Laddi var farin að horfa á hana á tímabili þar sem það heyrðist nú alveg í Bombunni hehe.

Svo er bara nóg framundan hjá mér, býst við að ég sé að fara að keppa um helgina. Já já mín bara að keppa 2x í sama mánuðinum hehe, einu sinni keppt þú getur ekki hætt eða eitthvað svoleiðis. Nei nei, kannski ekki alveg en ég var að skoða mótaskránna og sá að Njöddi skráði okkur í tvennda. Það verður ö-a bara gaman ef hnéð á mér leyfir. Það er eitthvað búið að vera að bögga mig undanfarið en vona bara að það verði komið í lag um helgina.
Brynja vinkona er svo að koma í heimsókn frá DK núna í lok febrúar og ég hlakka ekkert smá til að hitta hana og familíuna hennar. Verð nú að fá að knúsa hann Mána litla (eða á ég að segja stóra). Hún ætlar að vera hérna í nokkra daga og ég ætla að reyna að hitta á hana ef hún verður nógu lengi á sama stað hehe.
Svo er Glasgow ferðin hjá okkur skvísunum líka alveg að skella á. Kaupa föt, kaupa föt jibbí jei!!! Ekki veitir af að kaupa föt!!!! Já og ekki má gleyma Sálinni þann 14. mars og svo er árshátíð þann 15. Tala meira um það síðar:):)
Jæja orðið gott í bili

» 2 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 11
Heimsóknir
Í dag:  6  Alls: 43951
Klukkan
Leitarbox

Könnun
Ætlarðu til útlanda í sumar



Djammið